Air-fryer kjúklingavængirnir að hætti Hailey Bieber

Nú eru eflaust sumir sem spyrja í forundran hver Hailey Bieber sé og af hverju hún sé að loftsteikja kjúklingavængi á mbl.

Svarið er einfalt. Frú Bieber er mikill áhugakokkur (og gift tónlistarmanninum Justin Bieber auk þess að vera úr hinni fræug Baldwin leikarafjölskyldu) og heldur úti matreiðsluþætti á YouTube þar sem hún eldar.

Hailey hefur ekki farið leynt með matarást sína og að henni þyki gaman að elda og hér galdrar hún fram kjúklingavængi sem hún segir að séu þeir allra bestu.

Myndbandið sem fylgir með er stórhættulegt því maður getur eiginlega ekki hætt að horfa á það. Hailey er ekki hrædd við að handleika matinn auk þess sem við erum bláskotin í eldhúsinu hennar sem er í alvörunni eldhúsið heima hjá henni en ekki eitthvað stúdíó út í bæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert