Óvenjulegt matarboð í Mílanó

TABLEAU var með einstaka sýningu í Mílanó nú á dögunum.
TABLEAU var með einstaka sýningu í Mílanó nú á dögunum. mbl.is/TABLEAU

Þegar hönnunarstofan TABLEAU er annars vegar, þá má alltaf búast við einhverju stórkostlegu. TABLEAU er einstaklega skapandi og léku á alls oddi nú á dögunum í Mílanó - þar sem ein stærsta hönnunarhátíð ársins fór fram eins og ár hvert.

Sýning TABLEAU í ítölsku hátískuborginni var undir yfirskriftinni FUNCT FEAST IMMORALE - þar sem gestum var boðið að taka þátt og upplifa veisluhöld klædd litum, áferðum og efnum. Veislan fór fram á hinu þekkta veitingahúsi IMMORALE, þar sem ólíkir listamenn og hönnuðir höfðu hannað hin ýmsa borðbúnað og listmuni sem smellpassa inn á veitingastaðinn og gleðja augað.

Hugtakið hagnýt list og hönnun, lýsir listhlutum sem eru nothæfir og hafa notagildi - hlutir sem eru hannaðir og smíðaðir með fagurfræði í huga, þá næstum eins og skjáverk sem oft eru smíðuð en aldrei sett í fjöldaframleiðslu. Við leyfum myndunum hér að tala sínu máli

mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is/TABLEAU
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert