Ólöf Ólafsdóttir konditor og nýr liðsmaður í íslenska kokkalandsliðinu er annáluð fyrir kunnáttu sína í eftirréttagerð og alla jafna kölluð eftirréttadrottning Íslands. Á dögunum gaf Ólöf út bókina Ómótstæðilegir þar sem er að finna eftirrétti fyrir öll tækifæri sem gleðja bæði augu og munn.
Ólöf er algjört jólabarn og heldur mikið í hefðir og siði tengda jólunum þegar kemur að mat. „Jólamatseðillinn hjá mér er nánast heilagur, það er ávallt dýrindis humarsúpa sem bróðir minn Ásgeir Ólafsson býr til og síðan er það hamborgarhryggurinn sem hann lagar einnig. Í eftirrétt er það toblerone-ís sem ég og systir mín Bríet Eriksdóttir skiptumst á að gera ár hvert.“ Aðspurð segist Ólöf vilja bæði sjávarfang og steikur um hátíðirnar. „Ég get eiginlega ekki valið, finnst hvort tveggja ómissandi um hátíðirnar og fjölbreytnin er ávallt góð. Áramótamatseðillinn er hins vegar alltaf eitthvað nýtt enda eigum við oft til að vera ekki á sama staðnum yfir áramótin. Í fyrra fórum við út að borða í miðbænum og sáum síðan flugeldasýninguna hjá Hallgrímskirkju, það var stórfenglegt,“ segir Ólöf.
Ólöf deilir hér með lesendum eftirrétti úr bókinni sem hentar í öll hátíðarmatarboðin sem fram undan eru. „Á jólunum kom Hulda frænka mín heitin alltaf með sérrífrómas fyrir öll hátíðartilefnin. Ég man að mér fannst hann ekkert sérstaklega góður þegar ég var lítil en fannst hann síðan betri og betri eftir því sem árin liðu og með hækkandi aldri. Til heiðurs Huldu frænku langaði mig að gera frómasinn hennar í nýjum búningi og kynni hér til leiks Baileys-saltkaramellufrómas með gamaldags makkarónum og sykurlegnum kirsuberjum. Þegar mamma smakkaði þennan frómas ferðaðist hún aftur í tímann. Hann minnti hana á jólin hennar sem barn þegar sérrífrómas var á borðum við hvert tilefni,“ segir eftirréttadrottningin Ólöf.
Hægt er að fylgjast með Ólöfu í eldhúsinu og í eftirréttagerð á instagramsíðu hennar @olofolafs.
Frómasinn hennar Huldu frænku
Botninn
Fyrir 6
Aðferð:
Frómas
Til skrauts
Aðferð: