Mætir klukkan 04:30 í ræktina

Mel B ætlar að vera í sínu besta formi í …
Mel B ætlar að vera í sínu besta formi í sumar. AFP

Fólk alls staðar að úr heiminum bíður eftir því að Kryddpíurnar stígi aftur á stokk næsta sumar. Mel B ætlar að minnsta kosti að vera upp á sitt allra besta og æfir eins og vitlaus kona þessa dagana. Greindi hún frá því á Instagram að hún vakni fyrir allar aldir til þess að æfa. 

Söngkonan er með það markmið að líta út eins og á mynd sem hún birti á Instagram. Myndin er af henni sjálfri og var tekin af henni fyrir nokkrum árum.

„Æfingar og að borða rétt munar öllu, jafnvel þó svo ég þurfi að æfa klukkan 4:30 áður en ég vek krakkana mína fyrir skólann,“ viðurkenndi Mel B á Instagram. 

Segir hún hörkuna vel þess virði enda líði henni vel þegar hún finnur eitthvað breytast innra með sér. Einnig sé gott að sjá árangurinn utan frá. 

Einhver myndi segja þetta vera klikkað, að vakna um miðja nótt og æfa. Í Hollywood er þetta þó þekkt og er Mark Wahlberg líklega besta dæmið um það. Segist leikarinn venjulega vakna klukkan tvö á nóttinni til þess að fara á æfingu og spila golf áður en fjölskyldan vaknar. 

View this post on Instagram

Getting it done,workouts and eating right makes all the difference,even if I have to workout at 430am before I wake my kids up for school😩sorry @donaldromain for the super early starts,but come on oh my it’s worth it,it feels good when you can feel on the inside changes and you can see on the outside results happening,so I’m getting there,I’m not far off this picture that @itstroyjensen took of me a few years ago,this is MY inspiration,ME haha that’s right a picture of myself nobody else😜why? Why not,if you don’t start with loving respecting and believing your self your never gonna be happy with yourself,it’s that simple,your always gonna need somthing or someone else to complete you,so give yourself yourself and start from the inside out and learn to love yourself unconditionally with respect love and loyalty,and dedicate time to looking after YOU,then and only then are you living your best life,ahhhhhh,see then everything and I mean EVERYTHING and anything is possible #getready #patience #knowledge #2019 #stopabuse #brutallyhonest #livingmybestlife #workhardplayhard #womensupportwomen

A post shared by Scary Spice Mel b (@officialmelb) on Jan 11, 2019 at 11:33am PST

Mel B, Geri Halliwell, Emma Bunton og Mel C koma …
Mel B, Geri Halliwell, Emma Bunton og Mel C koma saman aftur í sumar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál