Gæti orðið skemmtilegasta mótið í mörg ár

„Þetta gæti orðið eitt skemmtilegasta mótið í mörg, mörg ár,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþrótta hjá Morgunblaðinu, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu.

Besta deildin hefst á morgun þegar Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík taka á móti Stjörnunni í 1. umferð deildarinnar á Víkingsvelli í Fossvogi klukkan 19:15.

Þriggja liða barátta?

„Valur og Víkingur eru bæði frábær lið og ég vona að Blikarnir verði þarna með þeim að berjast á toppnum,“ sagði Viðar Guðjónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu.

„Ég vona líka að önnur lið eins og Stjarnan og KR byrji þetta mót af krafti og setji sinn svip á mótið,“ sagði Viðar meðal annars.

Upphitunarþátt Dagmála fyrir Bestu deild karla má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Gylfi Þór Sigurðsson í baráttunni gegn Íslands- og bikarmeisturum Víkings …
Gylfi Þór Sigurðsson í baráttunni gegn Íslands- og bikarmeisturum Víkings í Meistarakeppni KSÍ í vikunni. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert