Fjölnismenn fyrstir í 16-liða úrslit

Fjölnismenn eru komnir í 16-liða úrslit.
Fjölnismenn eru komnir í 16-liða úrslit. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Fjölnir varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum í bikarkeppni karla í fótbolta með heimasigri á Selfossi, 4:2, í Egilshöllinni.

Selfoss byrjaði þó með látum því Valdimar Jóhannsson skoraði fyrsta mark leiksins á sjöundu mínútu. Dagur Ingi Axelsson jafnaði á 34. mínútu og stóð 1:1 í hálfleik.

Máni Austmann Hilmarsson breytti þeirri stöðu í 2:1 fyrir Fjölni á 54. mínútu og Júlíus Mar Júlíusson gerði þriðja mark heimamanna á 73. mínútu.

Spænski framherjinn Gonzalo Zamorano kom Selfossi aftur inn í leikinn á 81. mínútu, 3:2, en Jónatan Guðni Arnarsson átti lokaorðið er hann skoraði fjórða mark Fjölnismanna á 89. mínútu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka