Snýr aftur til Vals

Málfríður Anna Eiríksdóttir.
Málfríður Anna Eiríksdóttir. Eggert Jóhannesson

Knattspyrnukonan Málfríður Anna Eiríksdóttir er kominn til Vals á nýjan leik eftir stutta viðdvöl hjá B93 í Danmörku.

Málfríður hefur leikið með meistaraflokki Vals frá 2013 og spilað 123 leiki fyrir félagið í úrvalsdeildinni. Hún tók við fyrirliðastöðunni síðasta haust þegar Elísa Viðarsdóttir fór í barneignafrí og lyfti Íslandsbikarnum í mótslok.

Málfríður spilaði tvo leiki með B93 í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa farið til Danmerkur í febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka