ÍA og FH eigast við í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á sunnudaginn klukkan 14 en leikurinn hefur verið færður inn í Akraneshöllina.
Átti hann að fara fram á Akranesvelli en hefur verið færður inn þar sem a ekki er hægt að leika úti enn.
Er þetta annar heimaleikur Skagamanna sem fram fer í Akraneshöllinni en ÍA vann Fylki, 5:1, þar í síðustu umferð.
Verður því fyrsti grasleikur sumarsins seinna um kvöldið er KR fær Breiðablik í heimsókn á Meistaravelli.