Belginn Eden Hazard úr Chelsea hefur útnefndur besti leikmaður októbermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Þar með fóru báðar viðurkenningarnar til Chelsea en áður hefur komið fram að Antonio Conte var valinn knattspyrnustjóri mánaðarins.
Hazard hefur spilað gríðarlega vel með Lundúnaliðinu á tímabilinu og hefur sýnt þá takta sem hann sýndi með Chelsea-liðinu fyrir tveimur árum en Harzard líkt og aðrir leikmenn Chelsea náðu sér engan veginn á strik á síðasta tímabili.
Hazard skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt í fjórum sigurleikjum Chelsea í október.