Ekkert leyndarmál að ég vil taka við Liverpool

Arne Slot vill taka við Liverpool.
Arne Slot vill taka við Liverpool. AFP/Maurice van Steen

Hollendingurinn Arne Slot er líklegur sem næsti knattspyrnustjóri Liverpool en enska félagið hefur mikinn áhuga á að fá hann frá Feyenoord í heimalandinu, þar sem hann hefur gert góða hluti.

Jürgen Klopp hættir með Liverpool eftir leiktíðina og hefur leit staðið yfir af eftirmanni hans. Sú leit er loks að bera árangur. 

Slot tjáði sig sjálfur um fregnirnar fyrir leik liðsins við Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í dag og viðurkenndi að hann hefur áhuga á starfinu.

„Félögin eru í viðræðum og ég bíð eftir niðurstöðu. Það er ekkert leyndarmál að ég vil taka við Liverpool,“ sagði Slot við Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert