Romain Grosjean og Kevin Magnussen verða áfram keppnismenn Haas-liðsins á næsta ári, að því er liðið hefur staðfest á kappaksturshelginni í Singapúr.
Grosjean hóf keppni með Haas á jómfrúarári liðsins í formúlu-1, árið 2016. Rann samningur hans út í ár en liðið hefur ákveðið að framlengja hann. Magnussen er bundinn liðinu út næsta ár.
Með þessu lokast fyrir þann möguleika að Haas ráði Nico Hülkenberg fyrir næsta ár, en hann yfirgefur Renault við vertíðarlok.
Næsta ár verður níunda fulla formúlu-1 vertíð Grosjean og ellefu ár verða þá liðin frá því hann þreytti frumraun sína í íþróttinni með Renault árið 2009.