Ótrúlegt markaskor hjá Ronaldo

Cristiano Ronaldo fagnar marki í gærkvöld.
Cristiano Ronaldo fagnar marki í gærkvöld. AFP

Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Cristiano Ronaldo státar af ótrúlegu markaskori fyrir Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid.

Ronaldo bætti tveimur mörkum í safnið í gærkvöld þegar Real Madrid fagnaði sínum fyrsta sigri gegn Dortmund á útivelli frá upphafi þegar liðin áttust við í Meistaradeildinni.

Ronaldo lék í gær sinn 400. leik í búningi Madridarliðsins og í þeim hefur hann skorað hvorki fleiri né færri en 411 mörk en leikurinn í gær var 150. Evrópuleikur Portúgalans á ferlinum.

Í þeim hefur hann skorað 112 mörk, þar af 109 í Meistaradeildinni og er hann sá markahæsti frá upphafi en næstur kemur Lionel Messi með 96.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert