Bale ekki á förum frá Real Madrid

Gareth Blae getur fyllt í skarðið sem Ronaldo skilur eftir …
Gareth Blae getur fyllt í skarðið sem Ronaldo skilur eftir sig. AFP

Julen Lopetegui, knattspyrnustjóri Real Madrid, segir Gareth Bale vera mjög ánægðan hjá félaginu og að hann sé fullkominn til að fylla í það skarð sem Cristiano Ronaldo skilur eftir sig. 

Framtíð Bale hefur verið óljós undanfarna mánuði og gaf hann það í skyn eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar að hann vildi yfirgefa Evrópumeistarana. Hann hefur verið orðaður við Manchester United en svo virðist sem Bale sé ekki að fara neitt. 

„Hann er mjög ánægður hjá Real Madrid. Þetta er frábært tækifæri fyrir hann til að sýna hvað hann getur. Ronaldo var einn mikilvægasti leikmaður í sögu Real Madrid, en hann vildi fara og við óskum honum góðs gengis.

Bale er stórkostlegur leikmaður og hann getur fyllt í skarðið,“ sagði Lopetegui á fréttamannafundi fyrir leik Real við Manchester United í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert