Messi er skrefi á undan Ronaldo

David Beckham
David Beckham AFP

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn David Beckham er hrifnari af Lionel Messi en Cristiano Ronaldo. Þetta sagði hann í samtali við franska miðilinn AS. 

„Messi er einstakur og það er enginn eins góður. Hann og Ronaldo eru betri en aðrir, en Ronaldo er skrefi fyrir aftan Messi,“ sagði Beckham við miðilinn. 

Beckham er eigandi og stofnandi Inter Miami í bandaríska fótboltanum. Líkt og Ronaldo lék Beckham bæði með Real Madríd og Manchester United, en þrátt fyrir það hefur hann meira álit á Messi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert