Hafnaði samningstilboði Real Madrid

Sergio Ramos verður samningslaus næsta sumar.
Sergio Ramos verður samningslaus næsta sumar. AFP

Sergio Ramos, fyrirliði knattspyrnuliðs Real Madrid á Spáni, hefur hafnað nýju samningstilboði spænska stórliðisins. Marca greinir frá þessu.

Ramos, sem er orðinn 34 ára gamall, gekk til liðs við Real Madrid frá uppeldisfélagi sínu Sevilla árið 2005 og hefur verið lykilmaður í liðinu síðan.

Hann var gerður að fyrirliða liðsins árið 2015 eftir að Iker Casillas samdi við Porto í Portúgal en núverandi samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.

Marca greinir frá því að félagið hafi boðið honum árs framlenginu en Ramos vill fá að minnsta kosti framlengingu til ársins 2022.

Ramos á að baki 666 leiki fyrir Real Madrid þar sem hann hefur skorað 100 mörk en hann hefur fimm sinnum orðið Spánarmeistari með liðinu og fjórum sinnum Evrópumeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka