Ekki lengi að komast á blað

Rúnar Már Sigurjónsson var ekki lengi að skora.
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki lengi að skora. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Rúnar Már Sigurjónsson og samherjar hans máttu þola 3:1-tap á útivelli gegn Craiova 1948  í rúmensku fyrstu deildinni í fótbolta í kvöld.

Skagfirðingurinn kom inn á sem varamaður á 68. mínútu hjá Voluntari og tíu mínútum síðar var hann búinn að minnka muninn í tvö mörk.

Þrátt fyrir úrslitin er Voluntari í öðru sæti deildarinnar með níu stig eftir fimm leiki. Markið var það fyrsta hjá Rúnari á leiktíðinni í öðrum leiknum, en hann hefur verið að glíma við meiðsli og missti af fyrstu þremur leikjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert