Fiorentina þurfti framlengingu gegn Tékkunum

Fiorentina er komið í undanúrslit annað árið í röð
Fiorentina er komið í undanúrslit annað árið í röð AFP/Michal Cizek

Fiorentina hafði betur gegn Viktoria Plzen í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu á Artemio Franchi-vellinum í Flórens í kvöld. Fyrri leik liðanna lauk með 0:0-jafntefli.

Ítalska liðið óð í færum og ekki minnkuðu yfirburðirnir þegar Brasilíumanninum Cadú var vikið af velli eftir 66 mínútna leik. Tékkarnir vörðust fimlega í 90 mínútur og þvinguðu fram framlenginu en þá var ekki meiri orka á tankinum.

Nicolas Gonzalez skoraði eftir tvær mínútur í framlengingunni og Cristiano Biraghi innsiglaði sigur þeirra fjólubláu í síðari hálfleik framlengingar. Fiorentina fylgir Aston Villa í undanúrslitin en Fiorentina tapaði úrslitaleik keppninnar gegn West Ham á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert