Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og fyrirliði enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, er byrjuð að æfa á ný með enska liðinu eftir að hafa eignast sitt annað barn 7. febrúar.
Hún hefur verið í barneignafríi allt þetta tímabil en ekki er útilokað að hún nái að spila á ný áður en því lýkur. West Ham á fjóra leiki eftir í deildinni, þann síðasta gegn Tottenham 18. maí.
Myndir af Dagnýju í þreksalnum og stutt spjall við hana var birt fyrir stundu á samfélagsmiðlinum X.
📍 Look who's back at Chadwell Heath 🥰#WHUWFC | #BarclaysWSL pic.twitter.com/Tv8ct0qkuJ
— West Ham United Women (@westhamwomen) April 18, 2024