Haaland tæpur fyrir undanúrslitaleikinn

Erling Haaland í leiknum á miðvikudaginn.
Erling Haaland í leiknum á miðvikudaginn. AFP/Darren Staples

Manchester City mætir Chelsea í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag en City verður mögulega án Erling Haaland.

Haaland var tekinn út af undir lok leiks á miðvikudaginn þegar Real Madríd sló City úr leik í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri liðsins sagði eftir leikinn að Haaland hefði beðið um skiptinguna og það þyrfti að koma í ljós hvort að hann spili í dag eða ekki.

Kevin de Bruyne bað einnig um skiptingu í leiknum en ætti að vera leikhæfur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert