Selma skoraði beint úr horni á fyrstu mínútunni

Selma Sól Magnúsdóttir í keppnistreyju Nürnberg.
Selma Sól Magnúsdóttir í keppnistreyju Nürnberg. Ljósmynd/fcn.de

Selma Sól Magnúsdóttir skoraði eina mark Nürnberg í 4:1 tapi liðsins gegn Eintracht Frankfurt  í þýsku 1. deild­inni í knatt­spyrnu kvenna í dag.

Mark Selmu kom strax á fyrstu mínútu þegar hún tók hornspyrnu sem fór inn í markið hjá nærstönginni.

 Frankfurt jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar og Nürnberg var svo 3:1 undir í hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði ekki betur en eftir aðeins níu mínútur skoraði Lara Prasnikar fjórða mark Frankfurt og stuttu síðar fór Selma af velli. 

Nürnberg er í  11. sæti, fallsæti, með 12 stig eftir 19 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka