Rekinn eftir tímabilið

Stefano Pioli fær reisupassann eftir tímabilið.
Stefano Pioli fær reisupassann eftir tímabilið. AFP/Marco Bertorello

Knattspyrnustjórinn Stefano Pioli verður rekinn frá AC Milan eftir tímabilið en liðið er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar með 69 stig, 17 stigum á eftir Inter Mílanó sem er þegar orðið meistari.

Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá á X. Forráðamenn félagsins eru ósáttir við frammistöðu liðsins á tímabilinu og hve langt er í grannana á toppnum.

Á meðal stjóra sem gætu tekið við eru Xavi, Ruben Amorim, Thomas Tuchel og Thiago Motta.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka