Arnór Ingvi skoraði í lygilegum sigri Norrköping

Arnór Ingvi Traustason skoraði í dag
Arnór Ingvi Traustason skoraði í dag Ljósmynd/Szilvia Micheller

Arnór Ingvi Traustason skoraði fjórða mark Norrköping í 4:2 sigri á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Elfsborg var 2:0 yfir í hálfleik.

Liðin mættust á heimavelli Norrköping og þegar flautað var til hálfleiks benti fátt til þess að heimamenn ættu eftir að ná stigi, hvað þá sigri. Christoffer Nyman skoraði tvö mörk og Ishmet Lushaku eitt og komu Norrköping yfir áður en Arnór Ingvi innsiglaði sigurinn með marki á 84. mínútu. 

Andri Fannar Baldursson spilaði allan leikinn fyrir Elfsborg en Ísak Andri Sigurgeirsson sat allan tímann á varamannabekk Norrköping. Norrköping er með sjö stig eftir fimm leiki en Elfsborg fjögur stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert