Hákon kom við sögu í mikilvægum sigri Lille

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille eru í Meistaradeildarsæti
Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille eru í Meistaradeildarsæti Ljósmynd/Alex Nicodim

Hákon Arnar Haraldsson spilaði síðustu 13 mínútur leiksins þegar Lille vann mikilvægan útisigur á Metz í frönsku deildinni í knattspyrnu í dag.

Skagamaðurinn hefur átt fast sæti í liði Lille undanfarið en byrjaði á varamannabekknum í dag. Heimamenn í Metz komust yfir úr vítaspyrnu á 23. mínútu en Lille jafnaði tíu mínútum síðar og komst yfir skömmu fyrir leikhlé.  

Lille er í 3. sæti deildarinnar en efstu þrjú sætin gefa þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert