Kolstad er komið í 1:0 í einvígi sínu gegn Drammen í undanúrslitum í úrslitakeppni norska karlahandboltans eftir 32:25-heimasigur í fyrsta leik liðanna í dag.
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti flottan leik fyrir Kolstad og skoraði fimm mörk. Róbert Sigurðarson komst ekki á blað hjá Drammen.
Næsti leikur fer fram í Drammen á mánudaginn kemur.