Andrea til Þýskalands

Andrea Jacobsen er farin til Þýskalands
Andrea Jacobsen er farin til Þýskalands Ljósmynd/Jon Forberg

Landsliðskonan Andrea Jacobsen gengur í sumar til liðs við þýska félagið HSG Blomberg-Lippe. Andrea leikur nú með Silkeborg-Voel KFUM í dönsku deildinni.

Greint er frá félagskiptum Andreu á heimasíðu þýska félagsins en Blomberg-Lippe er í 5. sæti sem stendur í efstu deild þýska handboltans. Andrea er 26 ára gömul og leikur sem vinstri skytta.

Andrea er fastamaður í íslenska landsliðinu og lék stórt hlutverk á heimsmeistaramótinu sem fram fór í desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert