Skara tryggði sér oddaleik við Höör í úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinn í handknattleik í kvennaflokki eftir heimasigur í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum í dag, 31:25.
Íslendingarnir hjá Skara voru áberandi. Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði sex mörk og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir bætti við þremur.
Oddaleikurinn fer fram á heimavelli Höör á mánudag.