Lopetegui tekur við Real Madrid

Julen Lopetegui, næsti þjálfari Real Madrid.
Julen Lopetegui, næsti þjálfari Real Madrid. AFP

Julen Lopetegui, þjálfari spænska landsliðsins, verður næsti þjálfari Real Mardrid. Hann mun taka við liðinu eftir að HM í Rússlandi lýkur.

Samkvæmt heimasíðu Real Madrid skrifaði Lopetegegui undir þriggja ára samning. Lopetegeui er 51 árs gamall og hefur komið víða við á ferlinum. Hann hefur þjálfað Real Vallecano, Porto, Real Madrid B auk yngri landsliða Spánverja.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert