Ég hélt að ég væri að verða veikur

„Þetta var tækifæri sem ég gat ekki hafnað,“ sagði Ýmir Örn Gíslason, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is.

Ýmir Örn, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við Rhein-Neckar Löwen í febrúar 2020 frá uppeldisfélagi sínu, Val, þar sem hann hafði leikið allan sinn feril.

„Þegar ég klæddi mig í Löwen-treyjuna í fyrsta sinn þá hélt ég að ég væri að verða veikur þegar að ég hljóp inn á völlinn,“ sagði Ýmir.

„Mér leið illa og fannst þetta hálfskrítið, ekki í mínum rauða bol,“ bætti Ýmir við.

Ýmir Örn er í aðalhlutverki í fjórða þætti af Sonum Íslands en hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni með því að smella á hlekk­inn hér fyr­ir ofan eða inn á heimasíðu þáttanna sem má nálgast hér.

Ýmir Örn Gíslason.
Ýmir Örn Gíslason. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert