Undirbúningsnám við HR stytt í eitt ár

Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Frá og með næsta hausti geta nemendur í frumgreinanámi við Háskólann í Reykjavík lokið undirbúningi fyrir háskólanám á einu ári. Samhliða styttingu námsins hefur skipulagi þess verið breytt. Nemendur velja nú braut sem gerir þeim  kleift að einbeita sér að undirbúningi fyrir það háskólanám sem þeir hafa áhuga á að fara í að loknu frumgreinanáminu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR. Þar segir að frumgreinanámið við HR sé það elsta sinnar tegundar hér á landi. Það var stofnsett í Tækniskóla Íslands árið 1964.

Undanfarin 12 ár hafa flestir nemendur tekið námið á þremur önnum en nú hefur það verið stytt í eitt ár. Námið hefur verið vinsæll kostur þeirra sem vilja brúa bilið milli iðnmenntunar og reynslu úr atvinnulífinu og háskólanáms. Á undanförnum árum hefur einnig aukist aðsókn nemenda sem vantar tiltekinn undirbúning í stærðfræði og raungreinum til að hefja nám í tæknigreinum.

Við skipulagsbreytingarnar var tekið mið af aðgangsviðmiðum akademískra deilda Háskólans í Reykjavík og aðalnámskrá framhaldsskólanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK