Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar

Þorsteinn Fr. Sigurðsson.
Þorsteinn Fr. Sigurðsson.

Þorsteinn Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra. Hann tekur við starfinu af Tryggva Friðjónssyni sem nú hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri Sjálfsbjargarheimilisins.

Þorsteinn er menntaður rekstrarhagfræðingur auk þess sem hann hefur einnig meistaragráðu í lögum, að því er segir í tilkynningu. Síðustu mánuði hefur hann gengt starfi verkefnastjóra hjá Sjálfsbjargarheimilinu. Áður var hann framkvæmdastjóri STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf (2012-2015) sem var tilraunaverkefni á vegum SA og ASÍ. Þá var hann  framkvæmdastjóri Stjórnlagaráðs (2010-2012), og framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta (1992-2009). Þorsteinn hefur jafnframt víðtæka reynslu af félagsmálum og rekstri félagasamtaka og er því mikill fengur að fá hann til starfa fyrir Sjálfsbjörg.

Um leið og Þorsteinn er boðinn velkominn til starfa er Tryggva þökkuð vel unnin störf fyrir landssambandið, en hann hefur gengt starfi framkvæmdastjóra þess samhliða starfi framkvæmdastjóra Sjálfsbjargarheimilisins frá 2011 og mun nú alfarið stýra starfi þess á ný, að því er segir ennfremur í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK