Keyptu Sigurð Gísla út

Saltfiskur á markaði í Coimbra í Portúgal.
Saltfiskur á markaði í Coimbra í Portúgal. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hjalti Halldórsson og Bjartmar Pétursson hafa keypt hlut Sigurðar Gísla Björnssonar og Magnúsar Guðmundssonar í fyrirtækinu Bacco Seaproducts. Eftir viðskiptin er fyrirtækið alfarið í eigu Hjalta og Bjartmars.  Húsleit var gerð hjá Sigurði Gísla nýverið vegna gruns um stórfelld skattalagabrot.

Hjalti Halldórsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Bacco Seaproducts, segir í fréttatilkynningu að nauðsynlegt hafi verið að Sigurður Gísli seldi sinn hlut vegna meintra skattalagabrota sem nú eru til rannsóknar. Ákvörðunin hafi verið tekin til að vernda framtíðarhagsmuni félagsins og viðskiptasambönd þess. Sigurður Gísli sé nú ekki á nokkurn hátt tengdur Bacco Seaproducts.  

Sigurður Gísli er stofnandi og eigandi útflutningsfyrirtækisins Sæmark ehf. Á mánudag sagði allt lykilstarfsfólk Sæmarks upp störfum hjá félaginu. Hjalti segir það hafa leitað til Bacco Seaproducts eftir störfum. Ekkert þeirra sé grunað um að hafa haft nokkra aðkomu að meintum brotum Sigurðar Gísla. Ákveðið hafi verið að bjóða starfsfólkinu störf hjá Bacco Seaproducts enda búi það yfir þekkingu og reynslu sem sé mikilvæg íslenskum sjávarútvegi, samkvæmt tilkynningu. 

„Hagsmunir framleiðanda, starfsfólks og viðskiptavina hafi verið hafðir að leiðarljósi við ákvörðunina,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK