Þessi fengu Lúðurinn í ár

Íslensku auglýsingaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Reykjavík Hilton Nordica í gær og fóru flestir Lúðrarnir til auglýsingastofunnar Brandenburg, eða alls sex talsins. 

Stofan fékk 22 tilnefningar og er það fjórða árið í röð sem hún hlýtur flestar tilnefningar á Ímark hátíðinni. Auglýsingar sem Brandenburg fékk verðlaun fyrir voru í flokkunum herferð, 

prentauglýsing, vefauglýsing, almannaheillaauglýsing, samfélagsmiðlaauglýsing og umhverfisauglýsing og viðburður ársins. Þær voru unnar fyrir Sorpu, Epal, Krabbameinsfélagið, Nova og Orkusöluna. Brandenburg var einnig valin auglýsingastofa ársins, annað árið í röð, en stofan var stofnuð árið 2012 og er í eigu Braga Valdimars Skúlasonar, Hrafns Gunnarssonar, Jóns Ara Helgasonar og Ragnars Gunnarssonar.

„Við erum mjög ánægð með þennan árangur og þetta sýnir að við erum öflugt teymi með viðskiptavini sem leyfa okkur að fara aðeins út fyrir rammann. Það er skemmtileg samvinna sem er greinilega að skila sér,“ segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburg. 

Kvikmyndaðar auglýsingar:

EM kvenna - óstöðvandi

Auglýsandi: Icelandair.

Auglýsingastofa: Íslenska auglýsingastofan. 

Útvarpsauglýsingar:

Dj jól Atlantsolíu

Auglýsandi: Atlantsolía

Auglýsingastofa: HN: Markaðssamskipti.

 

Prentauglýsingar:

Fögnum glæsileikanum

Auglýsandi: Epal

Auglýsingastofa: Brandenburg.

Vefauglýsingar:

Þú veist betur

Auglýsandi: Krabbameinsfélagið

Auglýsingastofa: Brandenburg.

Stafrænar auglýsingar:

Persónulegi pizzaofninn

Auglýsandi: Domino´s

Auglýsingastofa: PIPAR/TBWA

Samfélagsmiðlar:

Sjónvarp á fimmtudögum í júlí

Auglýsandi: NOVA

Auglýsingastofa: Brandenburg.

 

Umhverfisauglýsingar og viðburðir:

Rafmagnslaust í Höllinni

Auglýsandi: Orkusalan

Auglýsingastofa: Brandenburg.

Veggspjöld og skilti:

Litbrigði – Kontor Reykjavík

Auglýsandi: Kontor Reykjavík

Auglýsingastofa: Kontor Reykjavik

 

Bein markaðssetning:

Jólagjöf til alþingismanna – Borðspilið Skerðing

Auglýsandi: Öryrkjabandalag Íslands

Auglýsingastofa: ENNEMM

Mörkun:

Meniga endurmörkun

Auglýsandi: Meniga

Auglýsingastofa: Meniga

Herferðir:

Meira og minna endurunnið efni

Auglýsandi: Sorpa

Auglýsingastofa: Brandenburg.

Almannaheillaauglýsingar:  

Þú veist betur

Auglýsandi: Krabbameinsfélagið

Auglýsingastofa: Brandenburg.

Flokkurinn ÁRA:

Blóðskimun til bjargar

Auglýsandi: Háskóli Íslands – Læknadeild

Auglýsingastofa: Hvíta húsið

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK