Gengi Icelandair tók dýfu við opnun markaðar

Miklar sveiflur hafa verið á gengi Icelandair undanfarnar vikur.
Miklar sveiflur hafa verið á gengi Icelandair undanfarnar vikur. Eggert Jóhannesson

Gengi Icelandair hefur fallið nokkuð skarpt í Kauphöll Íslands það sem af er degi. Upp úr kl. 10 hafði gengi félagsins fallið um tæp 8% í 105 milljóna króna viðskiptum.

Gengi félagsins tók svo aðeins við sér og stendur nú í 10,5 og hefur lækkað um rúm 5%.

Fjárfestar virðast því ekki taka fréttum mjög vel þess efnis að Icelandair Group tækist ekki að greiða úr öllum fyrirvörum varðandi kaup fyrirtækisins á WOW air fyrir mánaðamót.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK