Sjálfkrýndur konungur að baki Indigo

Indigo Partners og stjórnandi þess, Bill Franke, sérhæfa sigg í …
Indigo Partners og stjórnandi þess, Bill Franke, sérhæfa sigg í rekstri lággjaldaflugfélaga og eiga hlut í fleiri félögum víða um heim. mbl.is/Eggert

Fjárfestingafélagið Indigo Partners sem nú hyggst festa kaup á hlut í WOW air var stofnað með það að markmiði að stofna til reksturs og fjárfesta í rekstri flugsamgangna og tengdum greinum. Þá pantaði félagið 430 flugvélar frá Airbus í fyrra, stærsta pöntun í sögu félagsins.

Félagið sem hefur starfsstöð sína í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum var af meðal annars stofnað af William (Bill) Augustus Franke árið 2003 og er hann jafnframt stjórnandi félagsins.

Bloomberg sagði frá því í fyrra að Franke sé sjálfkrýndur konungur lággjaldaflugferða og að hann hafi sérhæft sig í rekstri slíkra flugfélaga. Er Franke sagður hafa varið síðustu árum í að leita leiða til þess að forðast hækkandi rekstrarkostnað sem hann nefnir „veginn til helvítis“.

William (Bill) Augustus Franke.
William (Bill) Augustus Franke.

Franke sem er fæddur árið 1937 og útskrifaðist með BA í sagnfræði frá Stanford-háskóla árið 1959 og gráðu í lögfræði frá sama skóla árið 1961, hefur á ferli sínum meðal annars gegnt stöðu forstjóra American West Airlines, stjórnarformanns Tiger Airways og Spirit Airlines.

Indigo Partners er nú stærsti hluthafi í Tiger Airways sem er með bækistöðvar í Singa­púr og Spi­rit Air­lines, á Flórída. Fyrirtækið er einnig stór hluthafi í í Wizz Air, Frontier Air­lines, Volar­is Air­lines í Mexíkó og JetS­MART í Síle.

Pantaði 430 flugvélar

Í nóvember í fyrra tilkynnti Franke, sem stjórnandi Indigo Partners, ásamt fulltrúum flugvélaframleiðendans Airbus á flugsýningunni í Dúbaí að fyrirtækin hefði skrifað undir stærsta kaupsamning sem Airbus hefur nokkurn tíma gert.

Var fest kaup á 430 flugvélum og var verðmiðinn um 50 milljarðar Bandaríkjadala, andvirði rúmlega 6 þúsund milljarða íslenskra króna. Vélarnar eru af ýmsum gerðum Airbus-véla og munu þær skiptast milli WizzAir, Volaris Airlines og Frontier Airlines.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK