Þorsteinn nýr framkvæmdastjóri Bláma

Þorsteinn Másson, nýr framkvæmdastjóri Bláma.
Þorsteinn Másson, nýr framkvæmdastjóri Bláma. Ljósmynd/Aðsend

Þorsteinn Másson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bláma, samstarfsverkefnis Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu. Markmið samstarfsins snýr að nýsköpun og þróun tækifæra í vetni og orkuskiptum.

Þorsteinn hefur frá árinu 2016 starfað sem sérfræðingur á viðskiptaþróunarsviði hjá Arnarlaxi, þar sem hann fór fyrir leyfismálum og stýrði uppbyggingaráformum félagsins við Ísafjarðardjúp, ásamt öðrum verkefnum á viðskiptaþróunarsviði félagsins. Hann er formaður hafnarstjórnar Bolungarvíkurkaupstaðar.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun er haft eftir Þorsteini að hann hafi mikla trú á vestfirsku atvinnulífi og hann telji að með samstarfinu geti vestfirsk fyrirtæki orðið leiðandi á landsvísu á ákveðnum sviðum nýsköpunar í orkunýtingu.

Þorsteinn er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er með vélstjórnarréttindi. Hann er mikill útivistarmaður og býr ásamt eiginkonu sinni Katrínu Pálsdóttur og tveimur börnum í Bolungarvík.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK