Áforma fjölda íbúða í Skeifu

mbl.is

Eik auglýsir nú til útleigu atvinnuhúsnæði í Skeifunni 7 og 9 til skemmri tíma en bæði húsin munu líklega víkja á næstu árum.

Skammt frá hafa risið 50 íbúðir á Grensásvegi 1 en þar verða um 200 íbúðir og atvinnuhúsnæði. Miðað við stærð lóða gætu álíka margar íbúðir risið í Skeifunni 7 og 9.

Elko er með verslun í Skeifunni 7 en hyggst flytja sig um set í Skeifuna 19, í Mylluhúsið, ásamt Krónunni, að sögn Gests Hjaltasonar, framkvæmdastjóra Elko. Áformað sé að hefja vinnu við að innrétta nýju Elko-verslunina í vor og opna verslunina fyrir sumarið. Þá var Höldur með bílaleigu í Skeifunni 9 en hún var flutt í Skútuvog þar sem Vaka var áður.

Áforma að hafa bílakjallara

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, segir gert ráð fyrir íbúðum og atvinnuhúsnæði í stað áðurnefnds atvinnuhúsnæðis í Skeifunni 7 og 9. Fjöldi íbúða liggi ekki fyrir né heldur útfærsla á atvinnuhúsnæði.

Á grafinu hér fyrir ofan má sjá frumdrög að byggingum á reitum Eikar í Skeifunni en austan við Skeifuna 9 er KFC með veitingastað. Að sögn Garðars er ekki gert ráð fyrir svo miklu byggingarmagni austast á reitnum heldur að KFC verði þar áfram með veitingastað.

Nánar er fjallað um málið í ViðskiptaMogganum.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK