Þykkvabæjar hættir framleiðslu á frönskum

Þykkvabæjar franskar.
Þykkvabæjar franskar. Ljósmynd/Aðsend

Þykkvabæjar hefur ákveðið að hætta framleiðslu á frönskum kartöflum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Fram kemur að Þykkvabæjar hafi framleitt franskar kartöflur fyrir íslenskan matvörumarkað í 36 ár og mörg heimili hafi notað vöruna í áratugi. Því miður muni fyrirtækið ekki halda framleiðslunni áfram.

„Þykkvabæjar hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og hefur sem dæmi ekki framleitt snakk frá árinu 2017, við erum þó gífurlega stolt af þeim breytingum sem hafa átt sér stað og erum við í dag meðal þeirra fremstu í flokki á framleiðslu á tilbúnum réttum og fleira meðlæti sem margir notast við daglega í eldamennskunni,“ segir í tilkynningunni.

„Kartöflur eru og hafa alltaf verið ein af grunnstoðum Þykkvabæjar og samstarfið sem við höfum átt við íslenska kartöflubændur hefur alltaf verið ein af lykil áherslum okkar og mun vera um ókomna tíð. Við sendum þakkir til allra okkar viðskiptavina og hlökkum til komandi tíma.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK