Að minnsta kosti 42 sýrlenskir hermenn hafa látið lífið eftir loftárás Ísraelshers í Sýrlandi í nótt. Á annan tug hermanna eru særðir eftir árásina.
Árásin varð á svæði nálægt alþjóðaflugvellinum í Aleppo í Sýrlandi. Talið er hún hafi beinst gegn vopnageymslu Hezbollah-samtakanna.
Ríkismiðill Sýrlands, SANA, segir að almennir borgarar hafi einnig fallið og særst í árásinni.
Talsmaður Ísraelshers sagði við AFP-fréttastofuna vegna málsins að þau myndu „ekki tjá sig um fréttir frá erlendum fjölmiðlum“.
Uppfært klukkan 8.09
Tala látinna er nú komin upp í 42. Áður voru 36 taldir hafa fallið í árásinni.