Gríðarleg úrkoma gekk yfir Sameinuðu arabísku furstadæmin og nágrannaríki þess um miðjan mánuð. Úrkoman olli víðtækum flóðum í höfuðborginni Dúbaí og voru margir vegir í kringum borgina ófærir svo dögum skipti.
Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum tilkynntu í gær að þau myndu leggja til 544 milljónir dala, eða rúmlega 76 milljarða íslenskra króna, til að gera við skemmdirnar sem flóðin ullu.
„Við lærðum mikilvægar lexíur í því að takast á við mikla rigningu,“ sagði Sheikh Mohammed bin Rashid al-Maktoum forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag og bætti við að ráðherrarnir hefðu samþykkt styrk upp á „tvo milljarða dirhams til að takast á við skemmdir á heimilum íbúa“.
Illa hefur gengið að koma regnvatni frá þar sem frárennsliskerfi borgarinnar ræður illa við vatnsflauminn. Þetta hefur hindrað björgunarstarf að miklu leyti og hafa ófærir vegir haft áhrif á grunnþjónustu í borginni í marga daga.
Í skipulagi borgarinnar hefur víða ekki verið gert ráð fyrir frárennsliskerfi. Til að bregðast við stöðunni hafa tankbílar dælt upp vatninu, ekið því út fyrir borgarmörkin og losað.