Sýn sendir frá sér afkomuviðvörun

Höfuðstöðvar Sýnar.
Höfuðstöðvar Sýnar. mbl.is/Hari

Afkoma Sýnar hf. verður töluvert lægri á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en síðasta árs. Þetta kem­ur fram í af­komu­viðvör­un sem fé­lagið sendi frá sér nú síðdegis.

Drög að samstæðuuppgjöri Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2024 liggja nú fyrir og verður EBIT-afkoma samstæðunnar um það bil 120 millj­ón­ir króna.

Um er að ræða umtalsverða lækkun samanborið við sama tímabil á fyrra ári en afkoman var þá 428 millj­ón­ir króna.

„Það sem veldur einkum lægri afkomu er lækkun á farsímatekjum um 138 milljónir króna, þá sérstaklega IoT-tekjum, ásamt hærri afskriftum sýningarrétta,“ segir í tilkynningunni.

Eins og fram kom í árs- og árshlutareikningum félagsins fyrir árið 2023, þá var afskrift sýningarrétta lægri árið 2023 vegna endursamninga við birgja.

Áhrif þess á fyrsta ársfjórðungi ársins 2023 námu 193 millj­ón­ir króna.

Hafa ráðist í hagræðingaraðgerðir

„Félagið hefur ráðist í hagræðingaraðgerðir á árinu sem munu í ríkara mæli koma fram í afkomu þess á seinni helming ársins. Frekari upplýsingar um áætluð áhrif hagræðingaraðgerða á árinu verða veittar í fréttatilkynningu í tengslum við birtingu árshlutauppgjörs félagins.

Kostnaðaraðhald verður áframhaldandi verkefni félagsins á þessu ári, ásamt áherslu á aukinn vöxt og skilvirkni í rekstri.“

Árshlutauppgjör fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðungs 2024 verður birt eftir lokun markaða þann 7. maí 2024. Þá kemur fram að enn sé unnið að uppgjörin og geti það tekið breytingum fram að birtingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK