Sigrún Óskarsdóttir fæddist í Reykjavík 26. júlí 1937. Hún lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu á Sléttuvegi í Reykjavík 25. desember 2024.

Foreldrar hennar voru Óskar Gunnlaugur Steinþórsson bifreiðarstjóri, f. 1913, d. 2002, og Guðfinna Svanborg Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1912, d. 2002.

Sigrún var næstelst fjögurra systkina. Elstur var Stefán Þór, f. 1934, d. 2023, og á eftir Sigrúnu komu Helga, f. 1942, d. 1989, og Óskar Árni, f. 1950.

Sigrún var tvígift. Fyrri maður hennar var Garðar Karlsson vélstjóri, f. 1935, d. 2024. Börn þeirra eru Karl, f. 2.7. 1960, kvæntur Irynu Novakovska. Barn þeirra er Lilja, f. 2017. Börn Karls og Lindu B. Loftsdóttur eru Helena, f. 1990 og Steinar, f. 1993. Óskar, f. 25.4. 1963, d. 4.9. 2015. Óskar var kvæntur Hörpu Norðdahl Arnardóttur. Barn hans og

...