Svala Birna Magnúsdóttir fæddist á fæðingardeild Landspítalans í Reykjavík 29. desember 1976. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 31. desember 2024.

Foreldrar Svölu eru Bjarnveig Ingvarsdóttir, f. 31. janúar 1955, og Magnús Valur Jóhannsson, f. 2. desember 1954. Systkini Svölu eru Edda Elísabet, f. 29. júlí 1981, maður hennar er Martin Jónas Björn Swift, f. 31. ágúst 1980, og Valur, f. 6. nóvember 1988, kona hans er Elín Ásbjarnardóttir Strandberg, f. 24. ágúst 1987.

Svala giftist Jens Hjaltalín Sverrissyni, f. 18. nóvember 1981, þann 18. júlí 2009. Synir þeirra eru Kristján Ari, f. 8. ágúst 2005, Kjartan Bragi, f. 6. september 2009, og Kolbeinn Daði, f. 2. júní 2014. Foreldar Jens eru Steinunn Jensdóttir, f. 18. nóvember 1955, og Sverrir Ómar Guðnason, f. 15. mars 1955. Bróðir Jens var Vilhjálmur Ómar, f. 25. júlí 1977, d. 20.

...