Svona heldur Rúrik sér í formi á ferðalögum

Rúrik Gíslason er í fantaformi!
Rúrik Gíslason er í fantaformi! Samsett mynd

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn og IceGuys-stjarnan Rúrik Gíslason er í fantaformi, en hann hugsar vel um heilsuna og er duglegur að hreyfa sig þrátt fyrir að ferðast mikið. 

Um þessar mundir er hann staddur í Amsterdam í Hollandi og tók að sjálfsögðu góða æfingu þar. Oft eru flottir líkamsræktarsalir á hótelum sem hann er duglegur að nýta sér, en í þessu tilviki var ræktin hins vegar ekki góð – Rúrik dó þó ekki ráðalaus. 

Það fyrsta sem Rúrik gerði þegar hann lenti í Amsterdam var að fara út að hlaupa og fór fimm kílómetra. Af Instagram-síðu hans að dæma er hann duglegur að fara út að hlaupa á ferðalögum enda er það frábær leið til að fá hreyfingu og skoða sig um á nýjum slóðum.

Rúrik byrjaði ferðina á góðu hlaupi.
Rúrik byrjaði ferðina á góðu hlaupi. Skjáskot/Instagram
Rúrik deyr ekki ráðalaus ef líkamsræktin á hótelinu er léleg.
Rúrik deyr ekki ráðalaus ef líkamsræktin á hótelinu er léleg. Skjáskot/Instagram

Krefjandi og áhrifaríkar kviðæfingar á hótelherberginu

Seinna um kvöldið tók hann svo kviðæfingar á hótelherberginu, en æfinguna fann hann á YouTube-rás Pamilu Reif. Æfingin er ekki tímafrek og tekur aðeins sex mínútur, en hún getur verið framkvæmd hvar sem er og hentar því vel fyrir þá sem eru á ferðalögum. 

Æfingin samanstendur af mjög krefjandi kviðæfingum og er hver æfing framkvæmd í 30 sekúndur, en um leið og tíminn er liðinn er strax farið í næstu æfingu án hvíldar. Í myndbandinu sýnir Reif sjálf æfingarnar og því er auðvelt að fylgja þeim eftir, en þar má sjá æfingar á borð við fótalyftur, kviðkreppur, vasahnífa og planka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert