Sindratorfæran næstu helgi

Sindratorfæran verður haldin á laugardag.
Sindratorfæran verður haldin á laugardag. Ljósmynd/Aðsend

Sindratorfæran verður haldin næsta laugardag á Hellu. 30 keppendur eru skráðir til leiks og leita þarf aftur til ársins 2006 til þess að finna sambærilegan fjölda keppenda. 

Flugbjörgunarsveitin á Hellu og akstursíþróttanefnd Heklu standa að keppninni sem hefur verið haldin nær óslitið frá árinu 1973, segir í tilkynningu.

Ljósmynd/Aðsend

Þaulreyndir og nýliðar takast á

Keppnissvæðið er í Tröllkonugili austan Hellu og áhorfendur geta tyllt sér í brekkurnar nærri keppnissvæðinu og fylgst með.

Þaulreyndir keppendur og nokkrir nýliðar munu taka þátt í keppninni að þessu sinni. Má þar nefna Íslandsmeistarann Skúla Kristjánsson og fyrrverandi Íslandsmeistarann Jón Örn Ingileifsson.

Ljósmynd/Aðsend

Í tilkynningu segir að á síðustu árum hafi um 5.000 manns verið á svæðinu til þess að skoða græjurnar og sjá þær takast á við brautirnar. 

Bein útsending verður frá keppninni á Youtube og Rúv 2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert