Knattspyrnustjórinn Stefano Pioli verður rekinn frá AC Milan eftir tímabilið en liðið er í öðru sæti ítölsku A-deildarinnar með 69 stig, 17 stigum á eftir Inter Mílanó sem er þegar orðið meistari.
Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá á X. Forráðamenn félagsins eru ósáttir við frammistöðu liðsins á tímabilinu og hve langt er í grannana á toppnum.
Á meðal stjóra sem gætu tekið við eru Xavi, Ruben Amorim, Thomas Tuchel og Thiago Motta.