„Fréttin strax orðin gömul“

Hálfdan segir að mikil ferð sé á fiskinum.
Hálfdan segir að mikil ferð sé á fiskinum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

„Makríllinn er sprettharður fiskur og það getur verið mikil fart á honum. Í túrnum eltum við hann í yfir 100 mílur á einungis tveimur sólarhringum. Hann fer svo hratt yfir að þegar fréttist af makríl einhvers staðar er fréttin strax orðin gömul því það er engin vissa fyrir því að finna makríl þegar komið er á staðinn.“

Þetta segir Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki NK, sem er nú að landa 800 tonnum af makríl í Neskaupstað. Aflann fékk skipið í Smugunni og fer hann allur til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar.

Hálfdan segir að mikil ferð sé á fiskinum og því þurfi stundum að gefa sér góðan tíma til leitar.

„Við fengum aflann í fimm holum og besta holið gaf 260 tonn og þá var togað í rúman klukkutíma. Fiskurinn er frekar stór og ekki mikil áta í honum. Það bendir allt til þess að makrílgöngurnar séu miklu seinna á ferðinni nú en síðustu ár og því hefur vertíðin ekki farið af stað af miklum krafti. Ég hef hins vegar fulla trú á að menn nái að veiða kvótann,“ segir Hálfdan. 

Bjarni Ólafsson AK er væntanlegur til Neskaupstaðar í fyrramálið með 770 tonn sem einnig fengust í Smugunni og Beitir NK er þar að veiðum. Segir á vef útgerðarinnar að einnig hafi frést af makrílafla fyrir vestan land og vart hafi orðið við makríl suðaustur af landinu síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 954 kg
Þorskur 41 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.023 kg
26.4.24 Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet
Grásleppa 1.209 kg
Skarkoli 609 kg
Þorskur 275 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 19 kg
Ýsa 17 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.183 kg
26.4.24 Seigur Iii Grásleppunet
Grásleppa 942 kg
Þorskur 233 kg
Skarkoli 66 kg
Steinbítur 15 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 1.264 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 954 kg
Þorskur 41 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.023 kg
26.4.24 Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet
Grásleppa 1.209 kg
Skarkoli 609 kg
Þorskur 275 kg
Steinbítur 51 kg
Hlýri 19 kg
Ýsa 17 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.183 kg
26.4.24 Seigur Iii Grásleppunet
Grásleppa 942 kg
Þorskur 233 kg
Skarkoli 66 kg
Steinbítur 15 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 1.264 kg

Skoða allar landanir »