Fyrstu seiðin í sjó í Patreksfirði

Arnarnesið nýja í Patreksfjarðarhöfn. Fjórir Patreksfirðingar hafa verið ráðnir til …
Arnarnesið nýja í Patreksfjarðarhöfn. Fjórir Patreksfirðingar hafa verið ráðnir til starfa í tengslum við eldið í firðinum.

Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish hefur hafið laxeldi í Patreksfirði, rúmu hálfu ári eftir að áformin komust í uppnám þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála svipti fyrirtækið þeim rekstrar- og starfsleyfum sem tengdust eldinu.

Engin seiði voru komin í sjó þegar fyrirtækið var svipt leyfunum, en allt var þó til reiðu svo að hægt væri að hefja eldi, segir Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish.

„En í ljósi þeirrar óvissu sem fylgdi leyfissviptingunni þá ákváðum við að láta reyna á það að ala stærri fisk til útsetningar í sjó,“ segir hann í samtali við 200 mílur.

Fyrirtækin fengu síðar bráðabirgðaleyfi samkvæmt ákvörðun ráðherra, en það er fyrst nú sem seiðin fara loks í sjókvíarnar. Spurður hvenær megi því búast við að þessum fiskum verði slátrað segir Sigurður að slátrun gæti hafist fyrir lok næsta árs.

Sigurður segir að sér lítist vel á álit Skipulagsstofnunar.
Sigurður segir að sér lítist vel á álit Skipulagsstofnunar.

Slátrun sex mánuðum fyrr?

„Yfirleitt eru fiskarnir um 24 mánuði í sjó en það stysta sem hefur liðið frá útsetningu til slátrunar eru um sextán til átján mánuðir. Nú gætum við verið að horfa fram á um fjórtán til sextán mánuði í sjó, þó þetta fari auðvitað að miklu leyti eftir Móður náttúru. Við gætum þannig ef til vill náð slátrun um sex mánuðum fyrr en ella.“

Fjórir Patreksfirðingar hafa verið ráðnir til starfa hjá Arctic Fish vegna eldisins í firðinum. Er heildarfjöldi starfsmanna fyrirtækisins á Vestfjörðum því kominn á sjötta tug.

„Atvinnuuppbyggingin hér fyrir vestan heldur því áfram.“

Skipulagsstofnun birti á mánudag álit sitt um áform Arctic Fish um framleiðsluaukningu í Patreksfirði og Tálknafirði. Segist stofnunin telja að efni séu til að kveða á um að aukningin verði framkvæmd í áföngum. Framleiðslan verði þannig aukin í skrefum og reynsla af starfseminni og niðurstöður vöktunar muni stýra ákvörðunum um að auka framleiðslu frekar.

Inntur eftir viðbrögðum segir Sigurður að sér lítist vel á álitið. „Við erum sátt við þetta og þetta er í takti við þá vinnu sem við höfum verið að gera. Við höfum verið að byggja okkar eldi upp hægt og bítandi frá árinu 2009 og það er sú aðferð sem við teljum besta, svo að þetta álit rímar vel við okkar áform.“

Nánari umfjöllun birtist í ViðskiptaMogganum sem fylgdi Morgunblaðinu í gær, miðvikudag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »