Önnur gögn betri við mat á áhættu erfðablöndunar

Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir reiknistuðul sem notaður var við …
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir reiknistuðul sem notaður var við gerð áhættumats erfðablöndunar hafa haft ágalla, en ástæða þess var að stofnuninni var gert að endurskoða áhættumat án þess að til væru gögn um framleiðslu fiskeldisfyrirtækjanna. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Líklega er  hámarkslífmassi ekki besta einingin til að fylgja eftir áhættu erfðablöndunar . Betra er að nota stuðul sem er ekki jafn háður öðrum breytum svo sem fjölda útsettra fiska eins og gert er í Færeyjum, enda er það stærð sem er aðgengileg í skráningakerfi stöðvanna og er hægt að tengja beint inn í eftirlitskerfi Matvælastofnunar,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, í skriflegu svari við fyrirspurn vegna athugasemda Ríkisendurskoðunar er varðar endurskoðun áhættumats erfðablöndunar.

Í stjórnsýsluúttekt sinni á sjókvíaeldi hér á landi vekur Ríkisendurskoðun athygli á að við endurmat áhættumats erfðablöndunar árið 2020 hafi verið talið forsvaranlegt að hækka til muna þann lífmassa sem forsvaranlegt er að hafa í sjó með tilliti til mögulegs fjölda strokulaxa.

„Stór hluti þeirrar aukningar kom til þar sem Hafrannsóknastofnun ákvað að notast við lífmassa í stað hámarksframleiðslu við útgáfu eins og gert var í fyrsta áhættumatinu. Við þessa breytingu ákvað Hafrannsóknastofnun að nota stuðullinn 0,8:1 sem þýðir um 800 tonn af framleiðslu á móti 1.000 tonnum af lífmassa. Var áhættumatið því uppfært til hækkunar sem þessu nam. Í skýringum Hafrannsóknastofnunar kom fram að við ákvörðun stuðulsins hefði verið horft til reynslu úr sjókvíaeldi hér á landi á síðustu árum. Reyndin er hins vegar sú að samkvæmt reynslu síðustu ára hefði stuðullinn fremur átt að vera nær 1:1,“ er fullyrt í skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Önnur gögn ekki til

„Við endurskoðun áhættumats erfðablöndunar 2020 óskaði atvinnuvegaráðuneytið eftir því að niðurstöður yrði miðaðar við lífmassa en ekki framleitt magn. Við gerð áhættumats var stuðst við gögn sem miða við  fjölda strokufiska sem fall af framleiðslu, því þarf að nota hlutfallstuðul framleiðslu og hámarkslífmassa,“ segir Þorsteinn

Hann bendir hins vegar á að þegar Hafrannsóknastofnun var gert að endurskoða áhættumat erfðablöndunar hafi ekki verið til staðar gögn frá Matvælastofnun um hámarkslífmassa árin 2017 til 2019. „Því var úr nokkuð vöndu að ráða. Stuðullinn er ekki fasti heldur breytilegur milli fiskeldisfyrirtækja, og jafnvel milli svæða og tímabila innan sama fyrirtækis. Hann er háður ýmsum breytum, t.d. hita, stærð seiða við útsetningu, tímasetningu útsetningar, afföllum vegna veðurs, sjúkdóma o.fl.“

„Skoðaðar voru upplýsingar úr umhverfismatsskýrslum og upplýsinga aflað frá fyrirtækjum. Starfshópur stofnunarinnar komst  að þeirri niðurstöðu að á þeim tíma væri stuðullinn um 0,8 það er hlutfallið milli framleiðslu og lífmassa  8 á móti 10. Þetta hlutfall hefur farið hækkandi með línulegum hætti eins og nú má sjá á Mælaborði fiskeldisins en vefsíðan var gerð eftir að áhættumatsskýrslan var unnin. Ef línan er framlengd til ársins 2019, en það er lokaár viðmiðunar matsins 2020, má áætla að gildið hafi verið  0,8 á árinu 2019,“ útskýrir hann.

Hlutfallið milli framleiðslu og lífmassa. Það hefur vaxið línulega á …
Hlutfallið milli framleiðslu og lífmassa. Það hefur vaxið línulega á því tímabili sem það er skráð á mælaborð fiskeldisins. Ef línan er framlengd til ársins 2019 en það er lokaár viðmiðunar matsins 2020 sést að gildið er 0,8. Mynd/Hafrannsóknastofnun

Taka undir sjónarmið um fjármuni

„Taka verður til skoðunar hvort fjármögnun lögbundinna verkefna Hafrannsóknastofnunar þurfi að vera tryggari en nú er,“ segir í ábendingum Ríkisendurskoðunar. Er þar bent á meðal annars á að stofnunin þurfi að sækja um fjármagn í Umhverfissjóð sjókvíaeldis til að fjármagna lögbundin verkefni svo sem burðarþolsmat og vöktun á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis.

Þorsteinn segir Hafrannsóknastofnun taka undir þessi sjónarmið og að „fjármunir til lögbundinna verkefna Hafrannsóknastofnunar, þurfa á hverjum tíma, að vera tryggir og haldast í hendur við umfang þarfa og verkefna. Með því aukist bæði rekstraröryggi og fagleg geta til vöktunar og rannsókna sem leiði til bættrar þekkingar og ráðgjafar á viðkomandi sviðum og verkefnum.“

Fjárskortur stærsti vandinn

Þorsteinn segir fyrirkomulag fjármögnunar hafi hamlað framkvæmd vöktunar á lífrænu álagi sjókvíaeldis og bendir á að almennt hafi  úthlutun Umhverfissjóðs sjókvíaeldis til vöktunar og rannsókna verið lægri fjárhæð en það sem sótt hefur verið um ár hvert. Þá hafi fjármögnun og skortur á fyrirsjáanleika verið „stærsti vandinn við framkvæmd vöktunar á lífrænu álagi og rannsóknum.“

Ljóst er að það krefst „umtalsvert“ meira fjármagn en nú er ráðstafað til að sinna þessum verkefnum, að mati hans.

„Rétt er að taka má fram að Hafrannsóknastofnun sinnir vöktun á lífrænu álagi á fjarsvæðum sjókvíaeldissvæða en sjókvíaeldisfyrirtækjunum ber að vakta nærsvæði eldisins skv. starfsleyfum sínum frá Umhverfisstofnun. Nauðsynlegt er að vakta lífrænt og annað álag sem aukist getur fjarri eldissvæðum svo hægt sé að grípa til aðgerða ef vart verður við rýrnun á gæðum umhverfis fjarða vegna sjókvíaeldis.  Neikvæð umhverfisáhrif sjókvíaeldis á fjarsvæði myndu kalla á endurskoðun á burðarþolsmati svæðanna. Þá er mikilvægt að vakta vistkerfisleg áhrif sem hefur verið gert með vöktun og rannsóknum á botndýrum samhliða vöktun á lífrænu álagi,“ segir Þorsteinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,18 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,15 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 441,18 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 268,56 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 157,15 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,44 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »