Makríll á landgrunni og brúninni suður af landinu

Bráðabirgðaniðurstöður úr leiðangri Árna Friðrikssonar RE hafa verið kynntar á …
Bráðabirgðaniðurstöður úr leiðangri Árna Friðrikssonar RE hafa verið kynntar á vef Hafrannsóknastofnunar. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Bráðbirgðaniðurstöður mælinga í 19 daga leiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sýna að þéttleiki makríls í íslenskri landhelgi var álíka og síðasta sumar en útbreiðslusvæðið var minna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar.

Þar segir að makríll hafi fundist „aðallega á landgrunninu og landgrunnsbrúninni meðfram suðurströnd landsins og fáeinir fiskar fengust fyrir vestan landið.“

Árni Friðriksson lauk þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi þann 21. júlí síðastliðinn og hafði þá verið teknar 43 togstöðvar og sigldar um 3.250 sjómílur eða 6 þúsund kílómetrar. Einnig voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.

Yfirborðstog í Grænlandssundi í júlí 2023, segl og belgir sjást …
Yfirborðstog í Grænlandssundi í júlí 2023, segl og belgir sjást í yfirborði. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Anna Heiða Ólafsdóttir.

Svipuð útbreiðsla kolmunna

Ekki var aðeins rannsökuð útbreiðsla makríls, heldur var einnig skoðuð útbreiðsla síldar og kolmunna í íslenskri lögsögu að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar rannsökuðu.

„Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslenska sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið. [...] Kynþroska kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið í álíka þéttleika og síðasta sumar.“

Þá sýna bráðabirgðaniðurstöður einnig að hitastig í yfirborðslagi sjávar hafi verið álíka og sumarið 2022 fyrir sunnan og vestan landið en kaldara fyrir norðan.

Þá stendur leiðangur tveggja skipa Norðmanna enn yfir og er gert ráð fyrir að gögn frá skipunum fimm sem taka þátt í leiðangrinum verða tekin saman og greind upp úr miðjum ágúst og niðurstöður kynntar undir lok ágúst.

Útbreiðsla og þéttleiki (rauðir fylltir hringir) makríls (efri) og síldar …
Útbreiðsla og þéttleiki (rauðir fylltir hringir) makríls (efri) og síldar neðri ásamt hitastigi í yfirborðslagi sjávar. Yfirborðstogstöðvar með engum afla af viðkomandi tegund eru táknaðar með svörtum punkt. Athugið að kvarði fyrir þéttleika er mismunandi milli tegunda. Einnig eru sýndar dýptarlínur fyrir 200 m, 500 m og 1000 m. Kort/Hafrannsóknastofnun
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.5.24 400,04 kr/kg
Þorskur, slægður 9.5.24 556,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.5.24 303,97 kr/kg
Ýsa, slægð 9.5.24 278,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.5.24 125,75 kr/kg
Ufsi, slægður 9.5.24 129,36 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 9.5.24 219,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.5.24 Norðurljós NS 40 Grásleppunet
Grásleppa 1.774 kg
Þorskur 48 kg
Ýsa 12 kg
Skarkoli 11 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.848 kg
9.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 881 kg
Ufsi 80 kg
Samtals 961 kg
9.5.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 790 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 794 kg
9.5.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 3.204 kg
Samtals 3.204 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.5.24 400,04 kr/kg
Þorskur, slægður 9.5.24 556,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.5.24 303,97 kr/kg
Ýsa, slægð 9.5.24 278,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.5.24 125,75 kr/kg
Ufsi, slægður 9.5.24 129,36 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 9.5.24 219,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.5.24 Norðurljós NS 40 Grásleppunet
Grásleppa 1.774 kg
Þorskur 48 kg
Ýsa 12 kg
Skarkoli 11 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.848 kg
9.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 881 kg
Ufsi 80 kg
Samtals 961 kg
9.5.24 Bára NS 126 Handfæri
Þorskur 790 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 794 kg
9.5.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 3.204 kg
Samtals 3.204 kg

Skoða allar landanir »