Nýta snjallsiglingakerfi til lækkunar iðgjalda

Methúsalem Hilmarsson sérfræðingur í forvörnum hjá TM, Karl Birgir Björnsson, …
Methúsalem Hilmarsson sérfræðingur í forvörnum hjá TM, Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine og Reynar Ottósson framkvæmdastjóri Whale Safari. Ljósmynd/Aðsend

Whale Safari hefur tekið í notkun snjallsiglingakerfið IMAS (Intelligent Marine Assistance System), sem er hug- og vélbúnaðarlausn sem Hefring hefur þróað. Um er að ræða samstarfsverkefni fyrirtækjanna tveggja auk TM og hefur notkun kerfisins sýnt fram á að hægt sé að auka öryggi farþega sem og lækka iðgjöld vegna tryggingu farþega.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hefring.

Whale Safari sérhæfir sig í hvala- og fuglaskoðunarferðum og hefur, eins og sambærileg fyrirtæki, þurft að sjá hækkandi tryggingarkostnaði vegna þeirrar áhættu sem fylgir rekstri háhraða farþegabáta, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Þessir bátar ná miklum hraða og geta tekið allt að tólf farþega í sæti en við siglingu slíkra báta geta myndast alvarleg ölduhögg sem geta verið allt að níu sinnum meiri fram í stefni, þar sem fremstu farþegarnir sitja, en aftur í skut, þar sem skipstjóri er venjulega staðsettur.“

Vorið 2022 var ákveðið að hefja samstarf milli félaganna og var kerfinu komið fyrir í háhraðabátum félagsins, en siglingakerfið safnar gögnum í rauntíma um öldulag, hreyfingar báts og frá vélum og öðrum búnaði um borð á meðan á siglingu stendur, til að reikna og birta leiðbeinandi siglingarhraða fyrir skipstjóra með tilliti til öryggis.

Þá segir að IMAS-kerfið dragi þannig draga úr hættu á slysum um borð eða skemmdum á báti og búnaði. Auk þess getur það dregið úr eldsneytiskostnaði og minnkað kolefnisfótspor með bestun á siglingarhraða.

„Öllum gögnum sem safnað er úr siglingum báts og flota báta er streymt í IMAS Console skýið. Þar er hægt að fylgjast með siglingum í rauntíma, greina allar ferðir og gögn til að bæta bætta ákvörðunartöku og yfirsýn yfir reksturinn,“ segir í tilkynningunni.

Yfirlit siglinga og framfara

Í lok hverrar ferðar og í lok tilraunatímabilsins var í IMAS kerfinu hægt að nálgast ítarlegar skýrslur um allar siglingar á tímabilinu. Skýrslurnar veita yfirsýn yfir árangur við að bæta öryggi auk þess sem bent er á það sem betur má fara.

„TM gat séð út frá skýrslunum að notkun Whale Safari á IMAS kerfinu hefði skilað þeim ávinningi í auknu öryggi og fækkun tjóna og leiddi það til lækkunar á tryggingargjöldum Whale Safari. Þá gera Whale Safari og TM ráð fyrir að gera megi enn betur og skoðar tækifæri til sparnaðar fyrir tímabilið sem nú fer í hönd. Það er aukin þörf á tæknilausnum eins og IMAS kerfinu þar sem meðalkostnaður við tryggingar háhraðabáta hefur hækkað um 25 til 80% á heimsvísu á síðustu árum. Samkvæmt gögnum frá bandarísku strandgæslunni þá fjölgaði slysum á og af völdum báta um 26% ásamt því að báta tengdum dauðsföllum fjölgaði um 25% í Bandaríkjunum árið 2020.“

Fagna árangrinum

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Hefring, segir í tilkynningunni farsælt samstarf við Whale Safari og TM hafi „sýnt fram á getu IMAS snjallsiglingarkerfisins við að auka öryggi og lækka kostnað við tryggingar fyrir rekstraraðila háhraðabáta. Við erum að vinna í áframhaldandi þróun IMAS kerfisins og munum á næstunni kynna nýjungar sem efla munu enn frekar getu kerfisins við lágmarka eldsneytiskostnað og minnka kolefnisfótspor í útgerð mismunandi tegunda báta.“

„Við erum stolt af samstarfi okkar við Hefring og TM og geta þannig boðið upp á enn öruggari og hagkvæmari ferðir fyrir farþega okkar. IMAS kerfið hefur þegar leitt af sér lækkun á útgerðarkostnaði okkar. Næsta verkefni með Hefring verður að minnka á eldsneytisnotkun og kolefnisfótspori siglinga okkar. Markmiðið er alltaf að veita farþegum okkar ógleymalega og umhverfisvæna upplifun,“ er haft eftir Reynari Ottóssyni, skipstjóra og framkvæmdastjóra Whale Safari.

Methúsalem Hilmarsson, sérfræðingur í forvörnum hjá TM, fullyrðir að IMAS-kerfið sé bytling á sviði tryggingi fyrir rekstur af þessum toga. „Við höfum séð miklar hækkanir á tryggingaiðgjöldum báta á síðustu árum erlendis, sérstaklega fyrir háhraða og farþegabáta, sem hefur verið veruleg áskorun. IMAS tæknilausn Hefring býður upp á frábært tækifæri fyrir TM til að veita viðskiptavinum okkar enn betri og virðisaukandi þjónustu um leið og við náum að lækka tryggingaiðgjöld fyrirtækja. Með því að nýta ávallt nýjustu tækni eins og IMAS þá höfum við betri yfirsýn og getum greint áhættu betur og því sniðið þjónustu okkar að þörfum einstakra viðskiptavina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 333,89 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 278,70 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 132,32 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 1.674 kg
Samtals 1.674 kg
10.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.334 kg
Þorskur 542 kg
Ýsa 96 kg
Samtals 2.972 kg
10.5.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.861 kg
Þorskur 322 kg
Samtals 2.183 kg
10.5.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 1.739 kg
Samtals 1.739 kg
10.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 2.126 kg
Þorskur 369 kg
Ufsi 56 kg
Skarkoli 22 kg
Steinbítur 15 kg
Þykkvalúra 10 kg
Rauðmagi 7 kg
Samtals 2.605 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 333,89 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 278,70 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 132,32 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 1.674 kg
Samtals 1.674 kg
10.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.334 kg
Þorskur 542 kg
Ýsa 96 kg
Samtals 2.972 kg
10.5.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.861 kg
Þorskur 322 kg
Samtals 2.183 kg
10.5.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 1.739 kg
Samtals 1.739 kg
10.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 2.126 kg
Þorskur 369 kg
Ufsi 56 kg
Skarkoli 22 kg
Steinbítur 15 kg
Þykkvalúra 10 kg
Rauðmagi 7 kg
Samtals 2.605 kg

Skoða allar landanir »

Loka